Sjóstangaveiði
Farið er frá Dalvík. Eftir stutta siglingu er tekið til við veiðarnar og er spennan oft mikil þegar vel veiðist. Allur búnaður til veiðanna er um borð í bátnum.
Ferðin tekur 2 1/2 tíma

Ísdorg
Dorgveiði í gegnum ís að vetrarlagi er áhugamál
margra og vegna sérstöðu Ólafsfjarðarvatns er
mjög spennandi að veiða þar jafnt fyrir unga sem
aldna. Hótelið getur skaffað ísbora.
Ferskvatnsveiði
Ólafsfjarðará er vinsæl silungsá. Leigðar eru út sex stangir á dag sem skiptast niður á þrjú svæði með tveimur stöngum á svæði. Silungur gengur úr sjó upp ósinn inn í Ólafsfjarðarvatn og þaðan upp í ána. Fyrstu göngur upp í ána eru yfirleitt upp úr miðjum júlí. Stangaveiðifélag SVAK sér um sölu veiðileyfa en hótelið veitir upplýsingar.
Hótelið býður upp á silungsveiði í vatninu á sumrin gegn vægu gjaldi. Er þá róið út á vatnið og er veiði með ágætum.