Á góðviðrishelgum leggja oft tugir sleðaáhugamanna, víðsvegar að, saman upp í ferð frá Ólafsfirði. Snjósleðaferðir um allan Tröllaskaga, yfir til Héðinsfjarðar og Siglufjarðar, yfir Lágheiði og inn í Fljót og yfir til Dalvíkur. Allt eru þetta draumaferðir í góðu veðri. Nefna má að í góðu færi eru menn innan við hálftíma yfir til Siglufjarðar á sleðum.