Á skíði á
Tröllaskaga:

Skíðaiðkun á sér langa hefð á Tröllaskaganum, skíðamenn þaðan löngum raðað sér í fremstu röð íslenskra skíðamanna. Ekki þarf að fara langar leiðir til þess að bregða sér á skíði. Góðar gönguskíðabrautir liggja við bæina og um næsta nágrenni og lyftur eru einnig skammt frá bæjunum. Þar er að finna góðar svigbrautir sem eru m.a. samþykktar til alþjóðlegrar keppni (FIS).
Í Ólafsfirði eru göngubrautir lagðar suður fyrir bæinn og oftast er einnig hægt að skíða á vatninu. Aðstaða til gönguskíðaiðkunar er óvíða betri og fyrir áhugatrimmara er fátt sem jafnast á við að gleyma sér í stórfenglegri vetrardýrð Ólafsfjarðar.