Golfvöllurinn í Ólafsfirði er nyrsti golfvöllur landsins. Um er að ræða 9 holu völl, sem stendur hátt í mynni Skeggjabrekkudals, suðvestan við bæinn. Stórkostlegt útsýni er frá vellinum yfir bæinn og fjörðinn á haf út. Kjörinn staður til að spila golf undir íslenskri miðnætursól.
Einnig er skemmtilegur möguleiki að spila á nokkrum völlum í nágrenni við Ólafsfjörð. Nefna má völlinn í Lónkoti á Höfðaströndinni, Dalvíkurvöll og Akureyrarvöll. Kjörið er að gista í bjálkahúsunum á Ólafsfirði og taka nokkra daga í golf á Norðurlandi.